Starfshópur um almenna líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum
Hópnum er ætlað að vinna að framgangi líknarmeðferðar á hjúkrunarheimilum og setja þjónustuviðmið.
Í fimm ára aðgerðaráætlun um líknarþjónustu 2021-2025 kemur m.a. fram að leggja eigi áherslu á að efla líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum og tryggja að líknarmeðferð sé í boði fyrir alla þá heimilismenn hjúkrunarheimila sem á þurfa að halda. Í aðgerðaáætluninni segir m.a. „Líknarþjónusta hefst þegar íbúi flyst inn á hjúkrunarheimili og felur í sér opin og stöðug samskipti um einkenna- og líknarmeðferð íbúans …“ (bls. 5). Í aðgerðaáætluninni er tilgreind ein aðgerð tengd þjónustu hjúkrunarheimila í hverjum hinna sjö kafla áætlunarinnar (sbr. kafla heilbrigðisstefnu til ársins 2030).
Áherslur starfshópsins eru á eftirfarandi þætti aðgerðaáætlunar um líknarþjónustu:
2.3 Virk teymisvinna fagstétta á hjúkrunarheimilum.
· Skilgreina og leggja til verklag um þverfaglegt teymi um almenna líknarmeðferð innan heimilis/stofnunar, sem gengur þvert á deildir þess.
· Leggja til innihald samnings eða samkomulags um aðkomu öldrunarlækna/ krabbameinslækna/heimilislækna með þekkingu á almennri líknarmeðferð, allt eftir þörf íbúa.
3.3 Efla sérþekkingu fagfólks sem starfar á hjúkrunarheimilum.
· Koma með tillögur að uppbyggingu og hlutverki tengiliðanets á hjúkrunarheimilum.
· Koma með tillögur að því hvernig efla megi og meta þekkingu starfsfólks hjúkrunarheimila á almennri líknarmeðferð.
5.2 Að útbúa líknarrými í tengslum við hjúkrunarrými fyrir sjúklinga í heimaþjónustu um allt land.
· Leggja fram tillögur um endurskoðun kröfulýsingar fyrir hjúkrunarheimili hvað varðar rekstur á líknarrýmum.
· Leggja fram tillögur að viðmiðum um innlagnir í líknarrými hjúkrunarheimila.
6.2 Tryggja gæði líknarþjónustu á hjúkrunarheimilum.
· Leggja fram tillögur að stöðluðum verkferlum um almenna líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum og hvernig meta megi ánægju skjólstæðinga og aðstandenda með þjónustuna.
· Setja fram tillögu að skilgreiningu viðmiða um mönnun í líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum.
· Setja fram tillögur að hæfnikröfum og matskvörðum um færni starfsfólks í veitingu almennrar líknarmeðferðar á hjúkrunarheimilum.
Þótt áherslur í starfi hópsins verði á ofangreindar fjórar aðgerðir verður honum auk þess falið að skoða aðra þá þætti sem stutt geta við faglega uppbyggingu líknarþjónustu á hjúkrunarheimilum.
Starfshópinn skipa
- Svandís Íris Hálfdánardóttir, tilnefnd af Líknarmiðstöð Landspítalans, formaður
- Berglind Víðisdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Bjarney Sigurðardóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Margrét Guðmundsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Dóra Björk Jóhannesdóttir, tilnefnd af Líknarmiðstöð Sjúkrahússins á Akureyri
- Ólafur Helgi Samúelsson, tilnefndur af Embætti landlæknis
- Þórhildur Kristinsdóttir, tilnefnd af Embætti landlæknis
- Heiðbjört Ófeigsdóttir, tilnefnd af Sjúkratryggingum Íslands.
Hrafnhildur Ýr Erlendsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu er starfsmaður hópsins.
Starfshópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 11. desember 2023 og er falið að leggja fram tillögur til heilbrigðisráðherra innan níu mánaða frá skipun hans.